top of page

Leikskólinn Barnaból 

Velkomin 

Vinátta. Bros. Umhyggja. 

logo.jpg
leikskólinn (2)_edited.jpg

Kynning á vetrarstarfinu 

27.október 2026

 

Foreldrum og forráðamönnum er boðið á kynningu á vetrarstarfi leikskólans fimmtudagskvöldið 29. október kl. 20:00 í leikskólanum.

Á kynningunni verður farið yfir helstu áherslur vetrarins, verkefni barnanna og daglegt starf deildanna. Þetta er góð leið til að kynnast starfinu betur og eiga samtal við starfsfólkið.

​

Við hvetjum alla foreldra til að mæta og hlökkum til að sjá ykkur! 😊

3.júlí 2026

Nýja leikskólalóðin okkar er stórglæsileg og iðar hún af lífi þessa dagana. Börnin brosa hringinn og það er yndislegt að fylgjast með gleðinni sem ríkir á svæðinu. Lóðin er mjög fjölbreytt og þar er svo sannarlega eitthvað í boði fyrir alla.

Hönnunin býður upp á frábæra blöndu af náttúrulegu svæði og tilbúnum tækjum. Þessi samsetning hvetur börnin til að skapa tónlist, æfa jafnvægið, nota ímyndunaraflið, efla styrk sinn og örva skynjunina á fjölbreyttan hátt. Svæðið á að vera skemmtilegt þegar sólin skín en hönnunin gerir líka ráð fyrir miklu fjöri þegar snjórinn mætir á svæðið.

Á lóðinni er fallegt landslag og spennandi möguleikar til útieldunar sem bjóða upp á skemmtilegar samverustundir. Einnig er þar stórt hellulagt svæði sem í framtíðinni á að hýsa flotta útikennsluaðstöðu/gróðurhús. Það er mikill spenningur í loftinu og við hlökkum mikið til að nýta þetta flotta svæði enn frekar til náms og leiks á komandi misserum. Við hvetjum ykkur öll til að kíkja við og skoða þetta glæsilega svæði með börnunum ykkar!

IMG_6080.JPEG
IMG_6077.JPEG
IMG_6083.JPEG
IMG_6084_edited.jpg
IMG_6087.JPEG

3.júlí 2026

Skólaárinu 2025–2026 er lokið og sumarfrí  handan við hornið. Við hlökkum til að hlaða batteríin í sumar með sól og samveru með fjölskyldu og vinum. Leikskólalóðin verður tilbúin í ágúst þegar við byrjum aftur, og er það mikil tilhlökkun.

Brown Simple Aesthetic Photo Collage_edited.jpg

Viðburðir framundan 

2.nóv. - 6.nóv.

Vinavika

10.nóvember

Hatta-/höfuðfatadagur

16.nóvember

Dagur íslenskrar tungu

17.nóvember

Starfsdagur - lokað 

Matseðill vikunnar
2. - 6. nóvember

Mánudagur

Pasta, salat og brauð

Þriðjudagur

Fiskur í raspi

Miðvikudagur

Nautahakkbuff & spæld egg

Fimmtudagur

Fiskur í ostasósu

Föstudagur

Gúllas, hrísgrjón og brauð

bottom of page